Bílar&Sport - Sýningin

Fór með Supruna á sýningu í Fífunni  sem haldin var á vegum Bílar&Sport, nóg var af bílum og allavega tækjum allt frá fjarstýrðum bílum uppí risa trukka.  Mér fannst þessi sýning vera mjög vel heppnuð og virtist fólk allveg vera að fýla hávaðann í Suprunni þegar henni var startað öðru hvoru um helgina og læt ég hér fylgja video frá einum áhorfendanum  Cool

 


Nýjar myndir af Supru

Jæja núna eru loksins komnar alvöru myndir af Suprunni! Það var smá photo-shoot hjá mér og Danna félaga sem á Evo IX og þau Sævar og Rán ljósmyndameistarar smelltu af í gríð og erg!!

Ég held að ég láti bara myndirnar tala, njótið.......

 p.s. ég vil þakka Sæbba og Rán fyrir magnaðar myndir Cool


Bætti nokkrum myndum við.

Smellti nokkrum gömlum mótorsportmyndum í albúmið.

Þetta eru myndir frá Rallý og Torfærunni 2005 en þá tóku ég og Loffi þátt í rallinu og enduðum sem Íslandsmeistarar í 1600 flokk...bara gaman W00t


Svekktur útí SÝN !!

Allveg er þetta týpískt! nú þegar Sýn "Stöð2 sport" hefur fengið formúluna þá rugla þeir endursýninguna á keppninni!

Það er ekki einsog allir nenni að vakna um miðjar nætur til þess að glápa á keppnina og þegar ég hef reynt það þá endar það annsi oft með því að ég steinsofna í miðri keppni! 

Þannig að ég hef hingað til horft á endursýninguna í hádeiginu ef keppnin er um miðjar nætur en það er víst ekki hægt lengur nema að gerast áskrifandi að stöð 2 sport og ég hef bara ekki snefil af áhuga að borga áskrift af stöð sem sýnir 90% fótbolta! Nei, frekar fjárfesti ég í DVD upptökutæki og horfi á keppnina þegar mér sýnist daginn eftir og hananú....

 P.s. go KIMI!!!


mbl.is Massa svekktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytingar til góðs...

Jæja best að fara að tala aðeins meira um elskuna mína InLove

Ég gekk frá kaupunum á henni þann 18.febrúar og þá var strax ákveðið að þar sem ekki var komið veður til þess að keyra hana þá þyrfti nú að strjúka henni eitthvað.  Ég var engan veginn að fýla litinn á henni, rauð með fjólublárri perlu, í ákveðnum skilyrðum virtist liturinn vera upplitaður, ekki flott!  Þannig að ég var allveg ákveðinn að hún yrði höfð svört.

Þann 27. feb. var hafist handa, Kjartann vinnufélagi hjálpaði mér að rífa bílinn í frumeindir og svo 29. feb. komu góðir félagar að hjálpast til við að pússa og pússa. Þetta voru þeir Kjarri, Baddi, Danni og Árni Páll og eiga þeir þakkir skilið fyrir frábæra hjálp.

það var lítið sofið þessa helgi og nánast því búið uppá verkstæði og pizzur helsta næringin LoL, enda afraksturinn með eindæmum góður, það tókst að mála boddýið,hurðarnar, húddið, frambrettin, afturstuðarann og eitthvað af smástykkjum.

Síðan voru öll kvöld notuð til að skrúfa saman og gera restina klára fyrir sprautun næstu helgi.

Þann 7.feb. var restin sprautuð og þá var loksins hægt að demba sér í samsetningu og frágang. Nú fór að sjást virkilegur munur á henni.

Þann 13.feb. var hún reddí og smotterí eftir til þess að koma henni í skoðun, hann Loffi kom þá um kvöldið og hjálpaði mér að skipta um bremsudiska og klossa, þá kom í ljós að einn stimpill í breamsudælu var pikkfastur og eftir mikið vesen náðum við að laga það og þá var allt reddí og löngu kominn háttartími....

Þann 14.feb. þá var komið að því! renna henni í skoðun en þar sem það er enginn smá hávaði í henni þá fékk ég hann Vignir snilling til að smíða pílu í pústið og þvílíkur munur! það steinþagnaði í þessu galopna 4 tommu pústkerfi...  Svo fékk ég hann Loffa til þess að renna henni í skoðun fyrir mig þar sem ég hafði engann tíma til þess og það var kominn föstudagur og rúnthelgi framundan. Og það þurfti ekki að spyrja af því 09 miði komin á hana og engin athugasemd!

Já þetta tók nú ekki langann tíma og er ég ekkert smá ánægður með útkomuna, núna þarf bara að gefa sér tíma til þess að taka góðar myndir af henni.

Bless í bili. 

 


Draumabíllinn !!!

Jæja ég lét verða af því og keypti draumabílinn um daginn, Toyota Supra, og ég sé ekki eftir því!! Þvílík græja! 

Ég ætla að smella nokkrum myndum og segja kannski aðeins frá bílnum hérna fljótlega enn það eru páskar núna og ég í fríi aldrei þessu vant þannig að þá er ekkert annað að gera en að fara á rúntinn Cool


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband