Þá er búið að fjárfesta í nýjum mótor fyrir Supruna. Þetta er fully built mótor sem þýðir að hann á að þola um 1200-1300 hestöfl!! En það er búið að setja þrykkta stimpla og sterkari stimpilstangir o.m.fl.
Eins og mótorinn kemur úr kassanum þá á hann að ná ca.1000 hestöflum á race bensíni, þetta er hestaflatala sem erfitt getur verið að ná því útúr mótor í götulöglegum bíl sem er jafnframt virkilega fínn í akstri.
Það verður samt að öllum líkindum verkefni næsta vetrar að smella mótorinum í bílinn þar sem ég á eftir að fjárfesta í ýmsu öðru svo bíllinn þoli þessi aukahestöfl, t.d. kúplingu, drifskaft og öflugara bensínkerfi.
Ég er búinn að setja inn myndir af djásninu í myndaalbúmið....
Flokkur: Bílar og akstur | 12.6.2009 | 22:35 (breytt 24.6.2009 kl. 18:39) | Facebook
Athugasemdir
Ég hefði bara keypt mér ÞOTU............
Anna (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.